Húsbókin er fyrir fasteignaeigendur, húsfélög og verkbók fyrir fagmenn. Má bjóða þér að skrá viðhaldið þitt? Og/eða að skrá verkin þín?
V3.is forsíða Húsbókin er skráð á fastanúmer eignar Skráðu nafn fagmanna í símaskrána þína Færðu viðhaldið í viðhaldsbókina Fylltu út ástandsmat á þinni eign

Þú þarft að skrá þig til að tenglarnir virki


Skráning og notkun er án endurgjalds.

HÚSBÓKIN INNIHELDUR

Yfirlit

Stutt yfirlit
yfir húsbók

Símaskráin

Nafn fagmanns er skráð í símaskrána
Þú þarft að skrá nafn hvers fagmanns einu sinni og getur breytt upplýsingum ef við á. Nafn fagmanns þarf að vera skráð til að:
  • Það birtist á listanum yfir þína fagmenn þegar þú skráðir viðhaldið þitt
  • Til þess að símanúmer og nafn fagmannsins birtist á listanum "Finna fagmann". Á þeim lista birtast nögn fagmanna sem notendur V3 gefa ánægjueinkunnina 4 eða 5

Viðhaldsbók


Birta og skrá viðhald
Þú getur skráð upplýsingar jafnóðum og verk er unnið eða síðar eftir því sem hentar. Dagsetning þegar færslu er síðast breytt er vistuð. Þú getur:
  • Byrjað að fylla inn upplýsingar um valið verk þegar ákveðið hefur verið að ráðast í það
  • Þú getur fyllt inn upplýsingar um valið verk jafnóðum og það er unnið
  • Þú getur fyllt inn upplýsinar um heildarkostnað verks þegar því er lokið
  • Þú getur heimilað að birta valdar upplýsingar um valið verk ef eignin er sett í sölu
  • Þú getur valið úr Litlu símaskránni þinni nafn þess sem vann verkið
  • Þú getur skráð verk sem unnin voru síðustu árin eins og þú manst þau

Ástandsmat mitt


Ástandslýsing er form sem eigandi fyllir út

Þegar eigandi ætlar að selja eignina sína eða gera nákvæma úttekt á viðhaldsþörf
hennar, fyllir hann út ástandslýsingu. Hann velur ákveðið rými innanhúss eða utanhúss og fer kerfisbundið yfir ástandið á hverju rými. Ástandslýsing tilheyrir eignini og
eigandi getur skoðað og uppfært ástandslýsingu sem fyrri eigandi hefur gert. Ástandslýsing getur birst ef eign fer í sölu ef eigandi heimilar það. Ástandslýsingin inniheldur m.a.:
  • Hvaða rými lýsingin á við, t.d. eldhús
  • Upplýsingar um viðhaldssögu
  • Stöðluð lýsing á ástandi rýmis
  • Lýsing eigandans á rýminu

Byggingarsaga


Byggingarsaga inniheldur form sem er kallað Drög að byggingarsögu

Þú getur fyllt inn:
  • Hver er arkitekt hússins?
  • Einkenni hússins
  • Hver/hverjir byggðu húsið?
  • Ef þú setur eignina í sölu, geturðu heimilað notanda að lesa byggingarsögu

Umhverfi eignar


Lýsing á umhverfi
Inniheldur form sem þú getur merkt við staðreyndir um umhverfi þinnar eignar, t.d.:
  • Má hafa gæludýr í íbúðinni?
  • Er garður í rækt?
  • Er verslun nálægt?
  • Ef þú setur eignina í sölu, geturðu heimilað notanda að skoða lýsingu þína á umhverfi eignarinnar

Garðumsjón


Garðumsjón
opnast í verkbók fagmannsins ef hann notar hana til að halda utan um verk sem hann vinnur fyrir þig við þína eign. Þú getur sjálf(ur) skráð garðumsjón í Verkbókina með því að opna "Garðumsjón" og síðan "Skrá nýtt garðverk"

Hús sem V3 myndar


Laufás Grýtubakkahreppi

Styrktaraðili 2007



Styrktaraðili 2007