Húsbókin er fyrir fasteignaeigendur, húsfélög og verkbók fyrir fagmenn. Má bjóða þér að skrá viðhaldið þitt? Og/eða að skrá verkin þín?
V3.is forsíða Verkbók er skráð á notandanafn Skráðu upplýsingar um
þig í verkbókina
Gerðu húseigendum kost
á að finna þig
Haltu utan um verkin þín og skráðu upplýsingar um þau 

Þú þarft að skrá þig til að tenglarnir virki


 Skráning og notkun er án endurgjalds.

VERKBÓKIN INNIHELDUR:

Um fagmann

Þú sem fagmaður skráir upplýsingar um þig og þjónustu sem þú býður upp á. Nafn þitt þarf að vera skráð til að:
  • Það birtist undir tenglinum ,,Finna fagmann" á síðunni hér til vinstri.
  • Til þess að notendur geti fundið þig og sett sig í samband við þig

Verkin þín

Þú skráir upplýsingar um verk sem þú vinnur í verkbókina þína og tengir hvert verk við ákveðna eign eða húsfélag. Þú getur skráð niður punkta jafnóðum og verk er unnið eða í eitt skipti fyrir öll og getur breytt upplýsingum ef við á og bætt við upplýsingum. Dagsetning þegar færslu er síðast breytt er vistuð. Þú getur:
  • Byrjað að fylla inn upplýsingar um valið verk þegar ákveðið hefur verið að ráðast í það
  • Þú getur fyllt inn upplýsingar um valið verk jafnóðum og það er unnið
  • Þú getur fyllt út tíma fyrir hvert verk í lok dagsins
  • Þú getur haldið utan um tækjatíma fyrir hvert verk
  • Þú getur haldið utan um innkaup fyrir hvert verk
  • Notendur geta ef þú heimilar, skoðað valdar upplýsingar um verkin þín

Verk tengd valinni eign

Eigandi eignar getur skoðað upplýsingar sem fagmaður skrifar um verk sem hann vinnur á valinni eign. Eigandi þarf að vera skráður notandi V3.is. Skráning og notkun er án endurgjalds. Fagmaðurinn skráir verk á fastanúmer eignar til þess að eigendur eignarinnar geti fylgst með framvindu verksins. Eigandi eignar getur skoðað valda upplýsingar um verk á sinni eign. 
  • Eigandi eignar getur fylgst með framvindu verks
  • Fagmaður heldur utan um verk og upplýsingar um viðskiptavini sína

Verk tengt ákveðnu húsfélagi

Eigandi sem á eign í húsfélagi getur skoðað upplýsingar sem fagmaður skrifar um verk sem hann vinnur fyrir húsfélagið. Fagmaður skráir verk á kennitölu húsfélags. Eigandi eignar í húsfélagi þarf að vera skráður notandi V3.is. Skráning og notkun er án endurgjalds.
  • Eigendur eigna í húsfélagi getur skoðað verk sem fagmaður skráir á kennitölu húsfélagsins
  • Eigendur í húsfélagi geta fylgst með framvindu verks
  • Fagmaður heldur utan um verk og upplýsingar um viðskiptavini sína

Umsjón með garði valdrar eignar eða húsfélags

Garðumsjón er sérhæft form í verkbók fagmannsins til þess hugsað að halda utan um umsjón með garðinum, sem fagmaður vinnur fyrir eiganda eða húsfélag. Aðrir notendur geta einnig skráð garðumsjón í Verkbókina með því að opna "Garðumsjón" og síðan "Skrá nýtt garðverk"
  • Með því að skrá garðumsjón, heldur fagmaður utan um það sem gert er hverju sinni í garðinum
  • Eigandi eignar getur fylgst með því hvernig fagmaður heldur utan um garðverkin fyrir hann. Upplýsingar um garðverkin birtast í sérstökum kafla í húsbók eignarinnar
  • Eigendur eigna í húsfélagi geta fylgst með því hvernig fagmaður heldur utan um garðverk húsfélagsins. Upplýsingar um garðverkin birtast í sérstökum kafla í húsbók húsfélagsins

Copyright © 2007 Viðhaldsbók ehf - Netfang: vbok hjá vbok.is

Hús sem V3 myndar


Sænautasel á Jökuldalsheiði árið 2007

Styrktaraðili 2007



Styrktaraðili 2007