1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á vef Viðhaldsbókar.
2. Notendur skulu gefa upp rétta kennitölu, nafn og netfang við skráningu. Skráningum
sem ekki uppfylla þetta skilyrði verða eytt.
3. Ekki er heimilt að nota aðgang annarra.
4. Notendur bera sjálfir ábyrgð á öllu sem þeir skrifa á vefinn. Þeir skulu haga
notkun sinni á vefnum þannig að ekki sé brotið á friðhelgi persónu.
5. Óheimilt er að birta efni á vefnum sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða
almennt velsæmi eða ærumeiðandi efni.
6. Gagnkvæmur trúnaður. Viðhaldsbók fer með allar upplýsingar sem vefnum berast sem trúnaðarmál. Upplýsingar sem notandi aflar sér með lesaðgangi sínum í hóp (t.d.
sem félagi í húsfélagi) hlíta sömu reglum.
7.
Þegar þú skráir þig inn á vefinn, þá samþykkir þú sem notandi þessar reglur og
skilmála. Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta þessum skilmálum og
reglum hvenær sem er og án frekari fyrirvara og áframhaldandi samskipti þín við okkur falla undir
þær breytingar án frekari aðgerða.
8.
Þessir skilmálar og reglur falla undir íslensk lög og þú samþykkir að fara eftir þeim lögum.
Lagalegur réttur þinn er á engan hátt skertur vegna þessara reglna og skilmála.
9.
Einu upplýsingarnar sem við öflum um þig eru þær upplýsingar sem þú lætur okkur í té í
gegnum vefinn eða tölvupóst. Allar þær upplýsingar sem við fáum um þig á vef okkar eins og
póstfang þitt, Ip tölu, vafra, vefform og annað slíkt eru verndaðar undir almennum lögum um
persónuvernd. Eins eru allar upplýsingar sem við fáum um þig bundnar af þagmælsku okkar og við
veitum aðeins þeim sem þú óskar eftir að fái aðgang að þeim.
10. Viðhaldsbók ber ekki ábyrgð á því þótt tölvupóstur eða póstsendingar tefjist eða tapist.
11.
Allar kvartanir og ábendingar skulu berast til okkar skriflega eða í tölvupósti.
Komið verður til móts við allar kvartanir eftir bestu getu og reynt að uppfylla
réttmætar kröfur notenda.
12. Á vefnum verður síðar hægt að vistar flestar almennar gerðir af skjölum. Við berum
ekki ábyrgð á hvort tölva viðkomandi notanda ræður við að opna þau skjöl sem eru vistaðar á svæði eigandans. Viðhaldsbók ehf. tekur ekki neina ábyrgð á töfum sem kunna að verða á tölvupóstsendingum eða öðrum vandamálum tengdum því sem eru ekki undir okkar stjórn.
13. Allt útlit og efni sem er á vefsíðu okkar er eign eigenda Viðhaldsbókar.
og ekki er leyfilegt að nýta sér það á neinn hátt án skriflegs leyfis frá eigendum Viðhaldsbókar ehf.
14. Viðhaldsbók ber enga ábyrgð á tjóni vegna taps sem ekki er af völdum starfólks Viðhaldsbókar. Viðskiptavinir bera fulla ábyrgð á þeim upplýsingum sem þeir skrá í viðkomandi viðhaldsbók eða verkbók og við berum enga ábyrgð á sannleiksgildi
þeirra.
Viðskiptavinir samþykkja að draga ekki starfsfólk Viðhaldsbókar til ábyrgðar vegna neinna krafna
vegna neins tjóns, taps, kostnaðar og útgjalda, þar með talið lögfræðilegs kostnaðar sem kann að
rísa vegna skilmála þessara, notkunar notanda eða annarra á þjónustu okkar og vefsíðu.
Sérhver grein í skilmálum þessum skal skoðuð sérstaklega og án samhengis við önnur ákvæði skilmálanna.
Skrá inn nýjan notanda
|