Viðhaldsbók ehf
Viðhaldsbók ehf var lítið einkahlutafélag, stofnað
í febrúar 2007. Vefurinn var settur upp til að gera viðskiptahugmynd að veruleika
og gefa notendum kleift að halda utan um viðhaldsupplýsingar um eignir sínar í gegnum
netið. Viðhaldsbók ehf verður tekið af skrá sem einkahlutafélag í desember 2009
en vefurinn rekinn áfram af höfundi hans sem hefur áhuga á viðhaldsmálum fasteigna.
Ná má tölvupóstsambandi við umsjónarmann vefsins með því að senda tölvupóst á vbok@vbok.is
Þrír megin hlutar
Viðhaldsbók fyrir fasteignaeigendur, húsfélög og verkbók
fyrir fagmenn
Vefurinn er gerður fyrir skráða notendur. Aðrir notendur geta skoðað hluta af vefnum
en aðeins þeir sem skrá sig inn geta skráð hjá sér upplýsingar um verk sem snýr
að viðhaldi fasteignar þeirra, hússins eða verk á þeirra vegum. Notendur geta skráð hjá sér
hver vann ákveðið verk og sett símanúmer og netfang viðkomandi aðila á listann 'Símaskráin mín'.
Nánar um notkun
-
Allir notendur nýskrá sig inn á sama hátt. Aðeins þarf að nýskrá sig einu sinni. Í skráningarferlinu er beðið um
upplýsingar sem eru vistaðar undir notendanafni. Að nýskráningu lokinni, þarf notandi að skrá
eign á eignalista sinn. Notandi getur breytt
upplýsingum ef eitthvað breytist. T.d. ef hann selur/kaupir íbúð.
-
Upplýsingar sem notendur eru beðnir um í innskráningarferlinu eru notandanafn,
lykilorð, netfang, kennitala og nafn. Farið er með allar upplýsingar um notanda sem trúnaðarmál.
-
Áður en skráður notandi getur byrjað að nota viðhaldsbókina og tengt færslu nafni ákveðins fagmanns,
þarf hann að skrá upplýsingar um fagmennina sína í Símaskrána sína.
-
Boðið er upp á stöðluð form sem innihalda
verklýsingu og útboðslýsingu og með tímanum fleira sem lýtur að undirbúningi verks.
Öll form sem notandinn fyllir út á vefnum
eru vistuð undir hans notendanafni.
-
Húsfélögum stendur til boða að nýta nokkrar gerðir af formum sem eru sérstaklegar
hugsuð fyrir húsfélög. Þar má nefna fundargerðarform, form vegna yfirlýsingar húsfélags
(vegna sölu íbúðar í húsinu) og fyrrnefnd form húseigenda.
 |