Viðhaldsbók hússins er fyrir fasteignaeigendur, húsfélög og verkbók fyrir fagmenn. Má bjóða þér að skrá viðhaldið þitt? Og/eða að skrá verkin þín?
HyperLink Viðhaldsbók fasteign, eign Viðhaldsbók húsfélag Verkbók fagmaður  

Opna hjálparsíðu eigandans Opna hjálparsíðu húsfélags Opna hjálparsíðu fagmannsins Opna hjálparsíðu seljandans Opna hjálparsíðu kaupandans
Eigandi Húsfélag Fagmaður Seljandi Kaupandi

ALMENN - Hjálparsíða

   Til að skrá þig inn í fyrsta sinn velur þú  'Nýr notandi'

  • Veldu þér notendanafn án bila og séríslenskra tákna
  • Veldu lykilorð sem inniheldur minnst 7 tákn, ekki bil eða séríslenskt tákn
  • Tilgreindu netfangið þitt
  • Skráðu kennitöluna þína og nafn
  • Veldu 'Stofna notanda'
  • SKráðu eign þína á eignalistann þinn
 Næst þegar þú kemur, velurðu 'Skrá inn'
  • Fylltu út notandanafn og lykilorð og veldu 'áfram'
  • Smelltu á 'Fá sent gleymt lykilorð' ef það á við
  • Ef þú manst ekki notandanafnið þitt getur þú sent póst á vbok@vbok.is og beðið um að notendanafn þitt sé sent til þín. Þú verður sjálfur að biðja um gleymt lykilorð.
 Hvernig nota ég vefinn?
  • Þú notar viðhaldsbók hússins til að skrá upplýsingar um viðhaldsverk á þinni íbúð/eign
  • Þú notar viðhaldsbók húsfélagsins til að skrá upplýsingar um viðhaldsverk sem þú sérð um á vegum húsfélagsins
  • Þú notar verkbók fagmannsins til að skrá upplýsingar um þig sem fagmann og verkin þín
  • Þú skráir hjá þér upplýsingar um fagmennina þína og hve ánægður þú ert með vinnuna þeirra
  • Þú leitar að fagmanni sem aðrir notendur mæla með
  • Upplýsingar um þig, minnisbókin þín og fleira eru undir tenglinum 'Mínar síður'
  • Þú getur skráð 'Góð ráð' sem aðrir geta lesið. Þú getur leitað að góðum ráðum
  • Ef þú ert með eign í sölu geturðu skráð hana á sölulistann og heimilað tilvonandi kaupendum að skyggnast inn í viðhaldsbók eignarinnar þinnar
  • Ef þú ert að leita að íbúð til sölu, geturðu skoðað sölulista V3.is


 Símaskráin mín. Í hana skráir þú inn nafn fagmanns/fyrirtækis sem vinnur verk fyrir þig. Það gerir þú einu sinni fyrir hvern fagmann/fyrirtæki og hefur þessar upplýsingar hér eftir á vísum stað. Þegar þú skráir viðhaldsverk, getur þú skráð hver vann verkið fyrir þig. Til þess að nafn viðkomandi birtist við skráningu viðhalsdverksins þarftu fyrst að skrá það í símaskrána þína.

 Viðhaldið mitt. Þetta er hin eiginlega viðhaldsbók þeas þarna skráir þú upplýsingar um viðhaldsverkin. Þú opnar 'Viðhaldið mitt' og velur í hvaða viðhaldsbók þú ætlar að skrá, þeas hvaða eign viðkomandi viðhald á við ef þú átt fleiri en eina eign. Þú skráir upplýsingar um einstök verk eftir því sem við á. Þú getur byrjað að skrá upplýsingar um verk þegar þér hentar og bætt við upplýsingarnar síðar. Þú getur skráð framvindu verks í þar til gerðan reit. Þú merkir við hvort birta megi valdar upplýsingar á fasteignavef, um verkið ef eignin þín er sett í sölu.

 Byggingarsaga. Þú byrjar á að velja eign og skráir svo nokkra punkta um sögu hennar.

 Umhverfi. Þetta form er hugsað fyrir eiganda eignar að fylla út ef ástæða er til, t.d. þegar íbúð er sett í sölu. Þú merkir við hvort þú heimilir að upplýsingarnar birtist á fasteignasöluvef ef eignin þín er sett í sölu.

 Ástandslýsing. Þú velur viðhaldsbók viðeigandi eignar og getur svo valið rými í eigninni og fyllt út ástandsmat þitt fyrir rýmið. Þetta form er hugsað fyrir eiganda eignar til að taka kerfisbundið út einstök rými eins og t.d. eldhús í sinni eign. Þetta form er gott að fylla vel út þegar íbúð er sett í sölu. Þú merkir við hvort þú heimilir að upplýsingarnar birtist á fasteignasöluvef ef eignin þín er sett í sölu.

 Íbúð sett í sölu. Þegar þú ákveður að setja eignina þína í sölu og vilt heimila öðrum að skyggnast inn í viðhaldsbókina, seturðu eignina þína á sölulistann.

Ef þú lendir í einhverjum vandræðum eða ert með spurningu sem þú vilt fá svar við, sendu okkur þá gjarnan línu á netfangið okkar vbok@vbok.is  eða smelltu á tengilinn ábending


Hús sem V3 myndar


Hornbjargsviti árið 2000

Styrktaraðili 2007



Styrktaraðili 2007